Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
REF 3286417
Nýr kjarni einbýlishúsa, staðsettur í hjarta Ciudad Quesada, við suður Costa Blanca. Nálægt ýmsum verslunum og þjónustu, svo sem læknamiðstöð, börum og veitingastöðum, auk úrvals dægradvalar í næsta nágrenni; golfvellir, göngu- og hjólastígar í La Mata þjóðgarðinum og vatnagarður. Fallegar strendur Guardamar og Torrevieja eru aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Einbýlishús í Miðjarðarhafsstíl á tveimur hæðum, byggð á lóðum frá 200m2, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og ókláruðum kjallara (fer eftir lóð sem valin er). Aðalhæðin er með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd og garð í Miðjarðarhafsstíl. Hjónaherbergi og baðherbergi má einnig finna á aðalhæð. Baðherbergi og 2 hjónaherbergi eru á efri hæð, bæði með aðgangi að verönd með útsýni yfir garðinn. Flest húsin eru með óunnum kjallara en hann má sníða eftir þörfum og óskum gegn aukakostnaði, svo sem nýta sem aukastofu, afþreyingarherbergi eða jafnvel auka svefnherbergi með baðherbergi.
Húsin eru byggð með vönduðum efnum, þar á meðal náttúrulegum steini á framhliðunum. Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu. Fataskápar, innri og ytri LED lýsing, einkagarður og bílastæði á lóð fylgja með í kaupunum. Möguleiki er á einkasundlaug og/eða þakverönd, gegn aukakostnaði.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum