Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 4002453
Nýr íbúðakjarni í Ciudad Quesada, íbúðahverfi milli Torrevieja og Guardamar, sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og ýmsa aðstöðu til tómstunda. Þar er golfvöllur, vatnagarður, hótel og fjölbreytt úrval af afþreyingu og veitingastöðum. Í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar og Torrevieja. A-7 hraðbrautin gerir það auðvelt að ferðast til staða í nágrenninu sem og til flugvallarins í Alicante, í aðeins 30 mínútna fjarlægð.
Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, af tveimur mismunandi gerðum; íbúðir á jarðhæð með stórum görðum eða íbúðir á efstu hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með bjartri, opinni stofu. Það fer eftir staðsetningu þeirra innan kjarnans, hvort gengið er að eignunum frá götunni eða um innri göngustíg. Öllum íbúðum fylgir bílastæði.
Kjarninn er lokaður og með frábærri sameiginlegri sundlaug sem umkringd er svæði til að slaka á í sólinni.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum