Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 4280750
Nýr kjarni íbúða í hinu vinsæla íbúðahverfi Ciudad Quesada, við suður Costa Blanca. Svæðið hefur allt að bjóða fyrir daglegt líf, svo sem matvöruverslanir, verslanir, kaffihús, bari og veitingastaði, alþjóðlegan skóla og heilsugæslu. Fyrir útivistarfólk er margs konar afþreying í boði; golf, vatnagarður, íþróttamiðstöð og La Mata þjóðgarðurinn, tilvalinn fyrir gönguferðir eða hjólaferðir. Strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð og nágrannabæirnir Torrevieja og Orihuela Costa eru í 15-20 mínútna fjarlægð, þar sem Habaneras og Zenia Boulevard verslanamiðstöðvarnar eru staðsettar, ásamt fallegum ströndum.
Íbúðakjarni með nútímalegum eignum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, í tveggja hæða blokkum með fjórum íbúðum í hverri blokk, þar sem íbúðir á jarðhæð eru með sér garði og íbúðir á efstu hæð eru með sér þakverönd. Báðar gerðir bjóða upp á rúmgóða opna setustofu, borðstofu og eldhús sem opnast út á verönd með útsýni yfir sameiginlega sundlaugarsvæðið. Íbúðunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, geymsla og bílastæði á sameiginlegu bílastæði.
Kjarninn býr að stóru sameiginlegu sundlaugarsvæði í miðjunni sem umkringt er fallegum görðum.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum