Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 792108
Ný einbýlishús staðsett í bænum Rojales, við hliðina á stórri matvörubúð og fjölmörgum verslunum af öllum gerðum. Tilvalin staðsetning fyrir þá sem leita að greiðum aðgangi að þjónustu og vilja spænskt samfélag í næsta nágrenni. Í bænum Rojales eru nokkur íbúðahverfi, það hverfi sem stendur þar uppúr fyrir stærð sína og innviði er Ciudad Quesada en þar má finna golfvöll, vatnagarð og fjölbreytt úrval af dægradvöl. Allt þetta er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá stórkostlegum ströndum Guardamar.
Húsin eru á einni hæð og hafa þakverönd. Þau eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og boðið er uppá þann möguleika að koma fyrir þriðja svefnherberginu og baðherbergi á þakveröndinni. Þau samanstanda af opinni og bjartri stofu og nútímalegu eldhúsi með eldhústækjum og verönd. Við öll húsin er stórt útisvæði, með bílastæði á lóð og einka sundlaug með nuddpotti. Lagt er fyrir loftkælingu og hitun.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum