Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 888219
Nýr kjarni einbýlishúsa í Ciudad Quesada, íbúðahverfi sem hefur fram að færa alla nauðsynlega þjónustu, mjög nálægt Torrevieja og Guardamar og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndinni. Í boði eru tvær gerðir húsa; einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum eða einbýlishús með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk fullbúins kjallara, þar sem koma má fyrir 2 herbergjum til viðbótar ásamt baðherbergi. Húsin eru búin opnu alrými og stórum veröndum. Á lóðinni er bílastæði og pláss fyrir einkasundlaug og fallegan garð. Einnig má bæta við þakverönd með fallegu útsýni. Húsin eru í lokuðu hverfi með sameiginlegri sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum