Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Þessi eign er ekki í boði
REF 4270969
Nútímaleg einbýlishús í þorpinu Formentera del Segura, nálægt Rojales og Qiudad Quesada við suður Costa Blanca. Svæðið í heild sinni hefur mikið úrval af þægindum, matvöruverslunum, verslunum, kaffihúsum/börum og veitingastöðum og að auki má finna þar útivistaraðstöðu eins og golfvelli, fótbolta- og tennisvelli, vatnsrennibrautagarð og fleira. Hvítar sandstrendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð með bíl, en Torrevieja og Orihuela Costa eru í 15-20 mínútna fjarlægð, með frekari afþreyingu og þjónustu.
Kjarninn samanstendur af einbýlishúsum á tveimur hæðum og einbýlishúsi á einni hæð. Báðar gerðir hafa opna stofu, borðkrók og eldhús og alrýmið opnast út á verönd og sundlaugarsvæði. En-suite hjónaherbergið er með sér fataherbergi. Hús á tveimur hæðum býður upp á stofu með tvöfaldri lofthæð og hjónaherbergi á jarðhæð.
Í húsunum er foruppsetning fyrir loftkælingu, þeim fylgja eldhústæki, rafmagns gluggahlerar, sólarorku panelar fyrir heita vatnið, einkasundlaug og útisturta og flísalagður garður með bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Formentera del Segura er dæmigert spænskt þorp í Alicante héraði, sem staðsett er á bökkum Río del Segura. Friðsælt svæði til að njóta náttúrulegs umhverfis en stutt er að aka til helstu ferðamannasvæða, svo sem Guardamar, Torrevieja og Orihuela Costa.
Gott úrval af daglegum þægindum má finna í þorpinu, auk vikulegs útimarkaðar þar sem kaupa má ýmsar afurðir bænda á svæðinu. Glæsilegar strendur Guardamar eru aðeins 10 km í burtu, sem gerir Formentera að kjörnum stað til að njóta hefðbundins spænsks lífsstíls.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum