Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 2072377
Nýr kjarni eigna, aðeins 500m frá ströndum Guardamar en strandbærinn er við suður Costa Blanca ströndina og býr að allri nauðsynlegri þjónustu. Ganga má eða hjóla, frá kjarnanum í bæinn sjálfan. Góð tenging er vegalega við Alicante, Santa Pola, Torrevieja og Orihuela Costa og Alicante flugvöllur er í aðeins 30 mínútna akstursfjarlægð.
Í kjarnanum eru íbúðir með 2 svefnherbergjum, íbúðir á tveimur hæðum með 3-4 svefnherbergjum og einbýlishús með 4-6 svefnherbergjum. Allar eignir eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, eldhústæki fylgja með í kaupunum, ásamt fataskápum í svefnherbergjum, fataherbergi og eigin baðherbergi í hjónasvítu. Öllum eignum fylgir bílastæði í kjallara en einbýlishúsin hafa sér aðstöðu til að leggja tveimur bifreiðum.
Sameiginlegt svæði tilheyrir öllum eignum í kjarnanum og samanstendur af sundlaug, afþreyingarsvæði og barnaleiksvæði.
Íbúðirnar eru staðsettar í aðal byggingum kjarnans, nálægt sameiginlegri sundlaug og görðum. Velja má milli íbúða á miðhæðum, með stórum svölum, íbúða á efstu hæðum, með eigin þakverönd, eða íbúða á jarðhæðum sem byggðar eru á tveimur hæðum. Allar eignir hafa rúmgóða og opna stofu, borðstofu og eldhús. Tvöfaldar glerhurðir opnast út á stóra verönd, með ótrúlegu útsýni yfir hafið. Bæta má við nuddpotti eða grillaðstöðu á þakverönd íbúða á efstu hæð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum