Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
REF 3075383
Nýr kjarni íbúða á tveimur hæðum, 800 m frá ströndinni í Guardamar, með stórkostlegu útsýni yfir sjóinn. Guardamar er dæmigerður spænskur bær, og þú finnur allar helstu nauðsynjar í stuttri akstursfjarlægð frá kjarnanum. Glæstileg 14 km sandströnd prýðir bæinn. Kjörið fjárfestingartækifæri, vegna nálægðar við ströndina og Alicante alþjóðaflugvöllinn, sem er í 25 mínútna fjarlægð.
Í kjarnanum eru tveggja hæða íbúðir, með 3 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum, af tveimur gerðum: jarðhæð með stórri verönd og kjallara/bílskúr; og efri hæð með sér þakverönd. Í eignunum er björt og rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús og verönd sem nýtur fallegs útsýnir yfir Miðjarðarhafið. Allar íbúðirnar eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, herbergi eru búin fataskápum, gólfhiti er á baðherbergjum og bílastæði í bílageymslu fylgir.
Sameiginlega svæðið samanstendur af stórri sundlaug og görðum. Velja má um ýmislegt aukalega með eignunum, svo sem einkasundlaug, nuddpott og/eða sólskýli fyrir þakveröndina.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum