Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos
Þessi eign er ekki í boði
REF 3375903
Nýr kjarni einbýlishúsa í La Herrada, hverfi sem tilheyrir bænum Los Montesinos. Til norðurs má finna Ciudad Quesada í nokkurra mínútna fjarlægð og strendur Guardamar eru í um 15 mínútna akstursfjarlægð. Til suðurs er svo Torrevieja borg.
Nútímaleg einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Í húsunum er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í amerískum stíl ásamt þvottahúsi. Hjónaherbergið er með en-suite baðherbergi. Stórar glerhurðar í stofu opnast út á stóra verönd sem er yfirbyggð að hluta, garðsvæði og bílastæði.
Eignunum fylgja eldhústæki og fataskápar og gólfhiti er á baðherbergjum. Bílastæði er á lóð og lagt er fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla. Mögulegt er að bæta við sundlaug og/eða þakverönd gegn aukakostnaði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos
Los Montesinos er lítið þorp við Suður Costa Blanca, í um 10 mín. akstursfjarlægð frá Torrevieja.
Þetta er fullkomið þorp fyrir þá sem vilja setjast að, með allri nauðsynlegri þjónustu, umkringt ökrum og nálægt ströndinni. Skoðið fasteignaframboðið í Los Montesinos:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum