Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Cabo Roig
Þessi eign er ekki í boði
REF 130611
Nýjar íbúðir í Cabo Roig, Orihuela Costa. Blokkirnar standa hátt við suður Costa Blanca ströndina. Í sameign eru 2 sundlaugar fyrir fullorðna og 2 fyrir börnin, salerni, heitir pottar, leiksvæði og aðstaða til líkamsræktar utandyra. Tilvalin staður til að njóta sólarinnar og strandanna og öll nauðsynleg þjónusta er skammt undan. La Ronda verslunarsamstæðan er í aðeins 800 metra fjarlægð og innan við 2 km í burtu standa nokkrir golfvellir, svo sem Villamartín, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas.
Ólíkar íbúðir eru í boði, ýmist með 2 eða 3 svefnherbergjum og 1 eða 2 baðherbergjum. Íbúðum á jarðhæð fylgir garður, miðhæðir hafa stóra verönd og íbúðir á efstu hæð njóta þakverandar. Sumum íbúðum fylgir bílastæði í kjallara en fyrir aðra er mögulegt að festa kaup á slíku stæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Cabo Roig
Cabo Roig er ein af afmörkuðustu byggðunum við Orihuela Costa, og skartar sportbátahöfn, fallegri strönd með gullnum sandi og paradísarvík.
Gott þjónustustig, strendurnar og óviðjafnanlegar samgöngur gera Cabo Roig að einum eftirsóttasta stað þeirra sem leita að fasteignum við ströndina. Fasteignaúrvalið á Cabo Roig er mjög fjölbreytt, og hægt er að finna allt frá íbúðum við sjóinn að frábærum einbýlum og raðhúsum. Hér eru fasteignirnar í Cabo Roig
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum