Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, La Zenia
Þessi eign er ekki í boði
REF 3594851
Nýr íbúðakjarni, nálægt La Zenia ströndinni við Orihuela Costa. Vel staðsettur kjarni með miklu úrvali af daglegum þægindum, matvöruverslunum, börum og veitingastöðum í göngufæri. Tómstunda- og íþróttastarf er einnig í boði á svæðinu, eins og fjórir golfvellir, tennisvellir og hjólastígar, auk vatnaíþrótta við strendur Orihuela Costa. Hin frábæra Zenia Boulevard verslunarmiðstöð er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn samanstendur af íbúðum á jarðhæð með 2 svefnherbergjum, tveggja hæða íbúðum með 3 svefnherbergjum og þakíbúðum með 3 svefnherbergjum og sér þakverönd. Allar íbúðirnar hafa rúmgóða opna setustofu, borðstofu og eldhús en úr alrými er gengið útá stóra verönd. Eignir á tveimur hæðum hafa svefnherbergi á aðalhæð og 2 en-suite svefnherbergi á efri hæð. Þakíbúðirnar eru með en-suite hjónaherbergi og að innan er gengið uppá þakverönd með sjávarútsýni.
Á sameiginlegu svæði er sundlaug og garðar sem allir íbúar geta notið, sem og bílakjallari með geymslum og bílastæðum.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, La Zenia
La Zenia er einn af vinsælustu stöðunum á Orihuela Costa. Frábærar strandirnar hafa árum saman skorið sig úr vegna Bláa Fánans, en fjölbreytt fasteignaframboð og óviðjafnaleg þjónusta er megin aðdráttarafl La Zenia.
La Zenia heyrir undir svæðið Orihuela Costa og þar má finna stærstu verslunarmiðstöð Alicante-héraðs, La Zenia Boulevard. Það er án efa góð fjárfesting að eignast fasteign í La Zenia. Hér má sjá fasteignirnar við strandlengjuna í La Zenia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum