Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 1821400
Lúxus íbúðir við hinn glæsilega golfvöll Las Colinas Golf í Orihuela Costa, sem staðsettur er í 330 hektara dal og snýr að hafinu. Við Las Colinas er byggðin dreifð og fellur inn í umhverfið. Fullkominn staður til að komast í burtu og njóta náttúrunnar á 200.000 fermetra svæði, með fallegum gönguleiðurm og miðjarðarhafsgróðri, sítrónu- og appelsínutrjám. Las Colinas býður íbúum uppá sérstakan einka-strandklúbb við ströndina í Campoamor.
Í boði eru 3ja svefnherbergja íbúðir í þremur mismunandi útfærslum; íbúðir á jarðhæð með garði, miðhæðaríbúðir með 30 m2 verönd og þakíbúðir með þakverönd og stórkostlegu útsýni yfir hafið. Öllum eignum fylgir bílastæði og geymsla og íbúar njóta fyrirtaks sameiginlegs svæðir og þjónustu sem stendur til boða.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum