Einstök golfvilla í fremstu línu á einni hæð með 3 svefnherbergjum og víðáttumiklu sjávarútsýni í Las Colinas Golf

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf

frá 263,025,000 kr
frá 1.750.000€

3

3

329.00 m2

1479.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5208548

Einbýlishús á hinu gríðarfallega svæði, Las Colinas Golf, við suður Costa Blanca en völlurinn er verðlaunagolfvöllur sem umkringdur er náttúru og fegurð. Klúbburinn býður upp á úrval veitingastaða og lítill súpermarkaður er á staðnum, fyrir allar daglegar nauðsynjar. Svæðið Orihuela Costa og bærinn Pilar de la Horadada, sem eru í stuttri akstursfjarlægð, bjóða upp á meira úrval þjónustu. Auk þeirrar aðstöðu sem er í boði á vellinum sjálfum, hafa íbúar við Las Colinas Golf aðgang að einkastrandklúbbi við Campoamor ströndina. Þetta er kjörið svæði fyrir þá sem vilja slaka á í náttúrulegu umhverfi, nálægt þægindum borga og bæja.

Nútímalegt einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og kjallara/bílskúr, byggð á 1.479m2 lóð. Rúmgóða og bjarta opna stofan sameinar borðstofu, fullbúið eldhús og setustofu í eitt rými, með stórum gluggum sem opnast út á 162m2 verönd og sundlaugarsvæði. Veröndin er fullkominn staður til að njóta stórkostlegs útsýnis yfir golfvöllinn og Miðjarðarhafið, sem og öfundsverðrar útiveru.

Hjónaherbergið, með baðherbergi inn af, opnast einnig út á veröndina, en hin tvö svefnherbergin eru með sameiginlegu baðherbergi, og eru með fallegt útsýni yfir garðinn. Gestasalerni og skrifstofurými er inn af eldhúsi. Kjallarinn er glæsilegt 110m2 svæði, með mörgum möguleikum. Kjallarinn hefur verið útbúinn sem bílskúr, með plássi fyrir allt að tvo bíla og geymslurými, með litlu baðherbergi. Það fer eftir byggingarstigi og gegn aukakostnaði en hægt er að útbúaa kjallarann sem íbúð, heimabíó, líkamsræktarstöð eða annað.

Húsið verður vandað og byggt með hágæða efnum. Því mun fylgja loftkæling, fullbúið eldhús, LED lýsing (þar sem hægt er), gólfhiti á baðherbergjum, einkasundlaug og bílastæði á lóðinni.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf

Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.

Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.

  • 47 km
  • 6 km
  • 21 km
  • 6 km
  • 9 km
  • 5 km

Nánari upplýsingar um Las Colinas Golf

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.