Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 111622
Nútíma einbýlishús með einkasundlaug í Villamartin, vinsælu íbúðahverfi á Suður Costa Blanca, í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá La Zenia ströndinni og nálægt stærstu verslunarmiðstöð í héraðinu, Zenia Boulevard. Burtséð frá nálægðinni við Villamartin golfvöllinn, geta golfunnendur að auki skroppið á Las Ramblas eða Campoamor vellina sem eru skammt undan.
Húsin eru byggð á lóðum frá 314-400 m2 að stærð og eru á einni hæð með 100 m2 þakverönd. Öll húsin hafa 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, bílastæði á lóð og einkasundlaug er innifalin í verðinu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum