Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 238661
Nýr íbúðakjarni í Villamartín, í 5 mínútna akstursfjarlægð frá verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard, torginu Villamartín Plaza, og ströndum Orihuela Costa. Í boði eru íbúðir á jarðhæð með garði og íbúðir á efstu hæð með þakverönd, velja má milli 2ja eða 3ja svefnherbergja. Íbúðirnar eru allar með 2 baðherbergjum og verönd og í kjarnanum er sameiginleg sundlaug, garður og bílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum