Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3028800
Nýtískuleg hús með garði og einkasundlaug eða Jacuzzi (fer eftir módeli), staðsett í Villamartín sem er eitt af bestu íbúðahverfum Suður Costa Blanca. Aðeins fárra mínútna akstur er að frábærum ströndum Orihuela Costa og öll nauðsynleg þjónusta er í næsta nágrenni, svo sem veitingastaðir, bankar, apótek, skólar og ekki má gleyma golfvellinum Villamartín Golf.
Húsin eru hönnuð með hámarksnýtingu sólarljóss og dagsbirtu í huga, bæði hvað varðar áttir og stærð á gluggum. Vönduð efni eru notuð við byggingu og útkoman eru einstök, falleg og hagnýt heimili. Öll húsin eru á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum; einu niðri og tveimur uppi. Bæði herbergin á efri hæð hafa sér baðherbergi. Loftkæling og hiti í baðherbergisgólfum á efri hæð er innifalið í kaupunum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum