Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3062671
Nýr íbúðakjarni á vinsælu svæði Villamartín, nálægt ströndum Orihuela Costa og með alla nauðsynlega þjónustu í næsta nágrenni. Þrír af bestu golfvöllum á svæðinu, Villamartín, Las Ramblas og Campoamor eru í mjög stuttri akstursfjarlægð.
Kjarninn samanstendur af þremur blokkum á fjórum hæðum sem mynda hálfhring um sundlaugarsvæðið. Íbúðir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ýmist á jarðhæð með garði, miðhæð með svölum eða efstu hæð með eigin þakverönd og útsýni yfir sjóinn. Rúmgóð stofa, borðstofa og fullbúið eldhús í amerískum stíl. Öll svefnherbergi eru búin fataskáp og hjónaherbergið hefur eigið baðherbergi. Hver íbúð opnast út á verönd frá stofu og hjónaherbergi.
Allar íbúðir eru með gólfhita á baðherbergjunum og þeim fylgir bílastæði í kjallara. Íbúðir á efstu hæð hafa nuddpott og útieldhús. Mögulegt er að breyta eignunum í 2ja svefnherbergja íbúð, sem st
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum