Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 4229133
Íbúðasamstæða í hinu vinsæla íbúðahverfi Villamartín, við suður Costa Blanca. Villamartín tilheyrir Orihuela Costa, rétt sunnan við Torrevieja og finna má fallegar strendur í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð frá íbúðunum. Á svæðinu er enn fremur alhliða þjónusta, svo sem matvöruverslanir, kaffihús og veitingastaðir og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð. Fyrir áhugafólk um útivistaríþróttir býður svæðið upp á fjölmargar göngu- og hjólaleiðir, auk fjögurra golfvalla í innan við 10 km radíus; Villamartín Golf, Las Ramblas Golf, Las Colinas Golf og Real Club de Golf Campoamor. Alicante flugvöllurinn er í 50 mínútna fjarlægð. Eignirnar eru gott fjárfestingartækifæri.
Samstæðan samanstendur af byggingum á 3 hæðum, sem bjóða upp á nútímalegar íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum, ýmist í austur-, suður- eða vesturátt. Velja má milli jarð- og miðhæðaríbúða með stórum veröndum eða þakíbúða með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með rúmgóðri stofu, eldhúsi og borðstofu í opnu rými með útgengi út á verönd. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi og í sumum eignum hefur það herbergi aðgang að verönd.
Allar íbúðirnar eru með eldhústækjum, loftkælingu, fullbúnu baðherbergi, bílastæði og geymslu. Í þakíbúðunum er einnig sumareldhús og útisturta á þakverönd.
Sameiginlegt svæði er fallegur garður í miðju kjarnans, með sundlaug sem allir íbúar geta notið.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum