Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 235561
Nýr kjarni einbýlishúsa í fremstu línu við golfvöllinn Lo Romero, með fallegu útsýni yfir umhverfið og nálægt allri þjónustu sem Pilar de la Horadada hefur að bjóða, aðeins 6 km frá stórkostlegum ströndum Torre de la Horadada. Í boði eru mismunandi gerðir húsa, öll á einni hæð og byggð á 161-249 m2 lóðum. Húsin eru nýstárlega hönnuð með stórum gluggum sem veita birtu um híbýlin. Þakverönd er á húsunum og bílastæði á lóð. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug og svæði fyrir börnin ásamt fallegum görðum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
Lo Romero Golf svæðið er yfir 1.25 milljón fermetra stórt og þar með er talinn 18 holu golfvöllur, par 72, með klúbbhúsi, æfingasvæði, íþrótta- og tómstundaaðstöðu, hóteli og verslunum.
Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í janúar 2008.
Frábært framboð er á fasteignum á svæðinu, en einbýlishús af ýmsum gerðum ráða þar ríkjum.Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í Janúar 2008.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum