Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 1938961
Ný kjarni raðhúsa í Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca, nálægt ströndum Torre de la Horadada. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er til staðar í bænum sjálfum sem er í stuttri akstursfjarlægð frá húsunum. Tilvalin staðsetning fyrir allt árið sem og ferðir í frí. Svæðið er vel tengt helstu svæðum í nágrenninu, svo sem Orihuela Costa og Torrevieja í norðri, og Los Alcázares og La Manga del Mar Menor í suðri.
Í boði eru hús með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og hús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Báðar gerðirnar eru með rúmgóðri opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, verönd sem er yfirbyggð að hluta og garði. Bílastæði er á lóð, gólfhiti á baðherbergjum og eignirnar eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun.
Ef valið er hús með 2 svefnherbergjum eru bæði herbergin með glerhurðum þaðan sem ganga má út á verandir fyrir framan eða aftan húsin. Gengið er upp á þakverönd um utanáliggjandi siga. Ef valið er hús með 3 svefnherbergjum er eitt svefnherbergi á jarðhæð með útgangi á verönd framan við húsið en önnur tvö svefnherbergi á efri hæð með eigin veröndum. Gengið er uppá þakverönd um utanáliggjandi stiga.
Kaupendur geta valið um flísar og önnur efni og bæta má við einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum