Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 1942500
Nýr raðhúsakjarni í bænum Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Hvítar sandstrendur Torre de la Horadada eru í stuttri akstursfjarlægð og bærinn býður uppá alla nauðsynlega þjónustu; matvöruverslanir, banka, apótek og allt mögulegt. Tilvalin staðsetning, bæði fyrir þá sem dvelja vilja árið um kring og þá sem koma í styttri ferðir. Svæðið er vel tengt helstu borgum og svæðum í nágrenninu, svo sem Murcia og Orihuela Costa, auk þess sem tveir flugvellir eru í viðráðanlegri akstursfjarlægð, í Murcia og Alicante.
Húsin eru á tveimur hæðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk þakverandar. Opin stofa og borðstofa ásamt eldhúsi en hátt er til lofts í stofu sem gerir eignirnar bjartar og rúmgóðar. Á jarðhæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á efru hæð er svefnherbergi, annað baðherbergi og stórt rými á pallinum sem nota má sem þriðja svefnherbergið eða auka setustofu. Útaf pallinum er ver
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum