Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 1964819
Nýr íbúðakjarni í spænska bænum Pilar de la Horadada. Í göngufæri frá nauðsynlegri þjónustu, svo sem matvöruverslunum, bönkum, börum og veitingastöðum, apótekum og fleiru. Í næsta nágrenni má finna strendur Torre de la Horadada, en þangað má hjóla á 10 mínútum. Góð vegatenging er við helstu borgir á svæðinu, Alicante, Torrevieja og hið vinsæla svæði Orihuela Costa.
Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ýmist á jarðhæð með garði eða efri hæð með þakverönd. Hver íbúð er með rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi en úr alrými má ganga út á veröndina. Eigið bílastæði og geymsla fylgir hverri eign. Stórt sameiginlegt svæði er í kjarnanum, með sundlaug fyrir fullorðna og börn, görðum og leiksvæði fyrir þau yngstu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum