Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 3451036
Nýr íbúðakjarni í Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Kjarninn er staðsettur í stuttri akstursfjarlægð frá miðbænum, þar sem finna má gott úrval af daglegum þægindum, svo sem matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum, bönkum og læknamiðstöð. Svæðið býður einnig upp á íþróttamiðstöð þar sem stunda má fótbolta, tennis, padel og skella sér í innisundlaug. Ýmsar vatnaíþróttur eru í boði við ströndina í Torre de la Horadada og margar göngu- og hjólaleiðir að ströndinni, en aðeins 15 mínútur tekur að hjóla niðureftir.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, í tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með garði eða efstu hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu, borðkrók og eldhúsi og en-suite hjónaherbergi. Íbúðirnar á jarðhæðinni eru með verönd út af stofunni sem snýr að sameiginlegu svæði og verönd út af eldhúsinu ásamt bílastæði á lóð. Íbúðir á efri hæð hafa litla verönd út af stofunni, með útsýni yfir sameiginlega svæðið og þaðan er stigi uppá þakveröndina. Þessar eignir hafa eigið bílastæði á sameiginlegu bílastæði við kjarnann.
Sameiginlega svæðið er með stórri sundlaug fyrir fullorðna og börn, með nuddpotti og útisturtu. Enn fremur er aðstaða til líkamsræktar og fallegir garðar í kjarnanum.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum