Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 3625245
Íbúðakjarni nálægt miðbæ Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Bærinn býður upp á mikið úrval af daglegum þægindum, svo sem matvöruverslanir, verslandir, bari og veitingastaði ásamt bönkum, apótekum og heilsugæslu. Íþróttamannvirki í bænum bjóða uppá úrval af tennis-/padelvöllum, fótboltavelli, innisundlaug, hlaupabrautir og líkamsræktaraðstöðu. Hin fallega sandströnd Las Higuericas er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð eða 15 mínútur á hjóli.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, annað hvort á jarðhæð með stórri verönd eða efstu hæð með þakverönd. Alrýmið sameinar setustofu, borðstofu og eldhús og hefur aðgang að rúmgóðri verönd. Hjónaherbergi í öllum eignum er með sér baðherbergi. Fyrir íbúðirnar á efstu hæð er þakverönd með útieldhúsi, pergólu, lýsingu og gervigrasi. Sameiginlegt svæði eru sundlaug, garðar og geymsla fyrir reiðhjól ásamt bílastæðum.
Allar íbúðirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgir gólfhiti á baðherbergjum, LED lýsing innanhúss, geymsla fyrir reiðhjól og einkabílastæði. Þá má sérsníða frágang og „aukahluti“ gegn aukagjaldi.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum