Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
REF 4618235
Einstök íbúðabyggð í hjarta Pilar de la Horadada, mitt á milli Costa Blanca Sur og Costa Cálida. Á svæðinu er að finna mikið úrval þjónustu og þæginda frá degi til dags, eins og matarverslanir, banka, apótek, veitingastaði og framúrskarandi íþróttahöll með fótboltavöllum, tennisvöllum og strandtennis, innilaug og leikfimihúsi. Einnig aðstöðu til iðkunar útiíþrótta eins og golf, hjólreiða og gönguferða í nærliggjandi fjöllum. Að ógleymdum vatnaíþróttunum á einstökum ströndum Torre de la Horadada í einungis í 10 mínútna akstursfjarlægð eða 20 mínútna fjarlægð á hjóli.
Í byggðinni eru íbúðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum (annað inn af svefnherbergi), og er hægt að velja um tvær tegundir: neðri hæð með stórri verönd eða efri hæð með 63m2 sólstofu. Allar íbúðirnar eru í opnu rými sem samanstendur af borðstofu og eldhúsi sem opnast út á verönd. Íbúðirnar eru einnig með loftræstingu um stokk, gólfhita í baðherbergjum, heimilistækjum, innbyggðum skápum, ljóskösturum inni og úti og mynddyrasíma. Í sólstofu íbúða sem eru á efri hæð er einnig grillaðstaða. Samkvæmt líkani er einkabílastæði innan lóðarmarka eða stæði á sameiginlegu bílastæði. Einnig er hægt að kaupa stæði í bílskúr og/eða viðbótargeymslu gegn greiðslu.
Sameiginlega svæðið er fyrir alla íbúa byggðarinnar, þar er sundlaug með afgirtum garði og útisturtu. Frábært fjárfestingatækifæri felst í íbúðunum vegna staðsetningar, staðarhátta og verðs.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum