Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Torre de la Horadada
REF 4772434
Nýr íbúðakjarni sem er einungis í 400 m fjarlægð frá hinni stórkostlegu strönd; Higuericas beach sem er mitt á milli Horadada og San Pedro del Pinatar á suðurströnd Costa Blanca. Kjarninn er vel staðsettur og er stutt að aka í nágrannabæi til að sækja daglega þjónustu svo sem matvöruverslanir, bari og veitingastaði, banka, apótek og heilsugæslu. Staðsetningin er kjörin fyrir íþróttaáhugamenn, en 4 golfvellir eru í 10 km radíus frá kjarnanum, þá eru göngu- og hjólastígar í nálægð sem og höfn sem býður upp á siglingaferðir. Að auki er íþróttamiðstöð í nálægð með innilaug, tennis- og padelvöllum, fótboltavöllum og fullbúinni líkamsrækt. Tvær flottar verslunarmiðstöðvar eru í um 10-15 mínútna fjarlægð; Dos Mares og Zenia Boulevard, sem þjóna sínum tilgangi fyrir þá sem kjósa rólegri dagskrá. Hraðbrautin AP7 tengir kjarnann við flugvöllinn í Murcia en hann er einungis í 35 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í um 55 mínútna fjarlægð.
Kjarninn býður upp á nútímaleg heimili með einkasundlaug og eru fáanleg í ýmsum útfærslum; jarðhæðir með garði, þakíbúðir með þakgarði og raðhús og einbýlishús á tveimur hæðum með þakgarði. Allar eignirnar eru með stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými sem opnast út á verönd.
Íbúðirnar og raðhúsin eru með hjónasvítu, þvottahús sem er utangengt og sundlaug í garðinum, eða á þakgarði á efstu hæð. Einbýlishúsin eru með rúmgóðum hjónaherbergjum með fataherbergi og sér baðherbergi, og þvottahús á jarðhæð. Allar eignirnar sem eru með þakgarð eru með útieldhús og stórkostlegu útsýni.
Allar eignirnar er hægt að fá eftir sínu höfði hvað varðar efnisval og innréttingar. Öllum fylgir tenging fyrir loftkælingu, eldhústæki, gólfhiti í baðherbergjum, stofu og eldhúsi, inni- og útilýsing, útisturta, sundlaug og bílastæði. Einbýlishúsin eru með gólfhita í öllum gólfum.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Torre de la Horadada
Torre de la Horadada er syðsta sveitarfélagið á Costa Blanca. Lítill ferðamannabær með 5 km strandlengju og nokkrar strendur sem hafa fengið Bláfánann, aðgreining, þar á meðal Las Mil Palmeras, El Conde, Las Villas og Las Higuericas
Torre de la Horadada er svæði þar sem þéttbýlisþróun felur aðallega í sér byggingu íbúða með einbýlishúsum og raðhúsum og lághýsum íbúðum. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa rúmgóða eign á Spáni nálægt ströndinni og með allri þeirri þjónustu sem þarf til daglegs lífs er Torre de la Horadada mjög áhugaverður kostur. Finndu nánari upplýsingar um eignirnar sem við höfum til sölu í Torre de la Horadada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum