Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 3682940
Nýr íbúðakjarni í San Miguel de Salinas, en bærinn er umkringdur appelsínuökrum og liggur nálægt ströndum Orihuela Costa. Í bænum er fullkomið úrval af daglegum nauðsynjum, eins og matvöruverslunum, bönkum, apótekum, verslunum, börum og veitingastöðum. Nálægt helstu þéttbýlissvæðum Torrevieja og Orihuela Costa.
Í boði eru íbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum, ýmist á jarðhæð með sér garði, miðhæð með verönd eða þakíbúð með verönd og þakverönd. Allar íbúðirnar eru með stofu með borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd. Íbúðirnar snúa í mismunandi sólaráttir. Í sameign er stór sundlaug í miðju kjarnans, auk bílakjallara með bílastæðum og geymslum.
Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar og bílastæði og hægt er að kaupa geymslu í kjallaranum.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum