Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 851817
Einbýlishús í íbúðarhverfi San Miguel de Salinas, en í næsta nágrenni má finna fjóra helstu golfvelli svæðisins; Villamartin Golf, Las Ramblas Golf, Real Club de Golf Campoamor og Las Colinas Golf. Að auki eru aðeins 10 mínútur að ströndum Orihuela Costa og í næsta nágrenni má finna alla nauðsynlega þjónustu, svo sem matvöruverslanir, apótek, banka og fleira. Í stuttu máli; tilvalinn staður til að búa allt árið um kring.
Húsin eru á tveimur hæðum auk 60 m2 þakverandar með útsýni að sjó. Húsið hefur 3 svefnherbergi, öll með sér baðherbergi, gestasalerni, opna stofu og nútíma eldhús með búri. Lóðirnar mælast 400 m2 og eignunum fylgir garður, bílastæði og sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum