Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata
REF 3080745
Einbýlishús staðsett aðeins 100 metra frá La Mata ströndinni í Torrevieja, við suður Costa Blanca og í göngufæri frá matvöruverslunum, kaffihúsum og veitingastöðum. Stutt er að aka til miðbæjar Torrevieja og verslunarmiðstöðvarinnar Habaneras. Ströndin La Mata er yfir 2 km löng og býður upp á úrval af vatnaíþróttum.
Einbýli með 4 svefnherbergjum og einstakri hönnun. Aðalhæð hússins er upphækkuð og samanstendur af bjartri stofu, borðstofu og eldhúsi ásamt en-suite svefnherbergi og gestasalerni. Verönd er við aðalinnganginn með útsýni yfir garðinn og sundlaugarsvæðið. 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi (1 en-suite) eru á neðri hæðinni og þar má að auki finna auka setustofu sem opnast út á litla verönd með aðgangi að garði og sundlaugarsvæði. Útistigi liggur uppá þakverönd á tveimur pöllum, með útsýni yfir Miðjarðarhafið.
Nútímaleg einbýlishús með hágæða frágangi og afhent með loftkælingu, innbyggðum fataskápum, einkasundlaug og garði, ásamt bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata
La Mata er lítið þorp sem heyrir undir Torrevieja. La Mata býður upp á 2ja km langar strendur með fínum sandi og sjarma Miðjarðarhafsþorps ásamt miklu úrvali af þjónustu. Fullkomin blanda hefða og nútímaþæginda.
Fullkominn staður til að njóta hafsins án þrengsla stórborgarinnar. Nýbyggingarnar á svæðinu eru íbúðir og raðhús í fyrsta flokki, í minna en 300 m. fjarlægð frá ströndinni og á mjög samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboð okkar við ströndina í La
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum