Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata
Þessi eign er ekki í boði
REF 3233113
Íbúðir við ströndina í La Mata, við suður Costa Blanca. Kjarninn er rétt við bæjartorgið og í göngufæri frá verslunum, börum og veitingastöðum auk íþróttaaðstöðu. Vikulegur götumarkaður er í La Mata þar sem versla má nýtt grænmeti og ávexti ásamt öðrum vörum. La Mata lónið, með reiðhjóla- og göngustígum, ásamt fugla- og vatnalífi er í stuttri akstursfjarlægð. Svæðið er vel tengt Torrevieja, Guardamar og Alicante.
Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, og þakíbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Allar íbúðirnar hafa opna stofu, borðstofu og eldhús en úr alrými er gengið útá verönd með frábæru sjávarútsýni. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi.
Íbúðirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu og velja má um ýmislegt aukalega gegn aukakostnaði, svo sem gólfhita á baðherbergjum og/eða allri íbúðinni, geymslu í kjallara og bílastæði í bílskúr ásamt fleiru. Fáðu upplýsingar um aðra valkosti hjá ráðgjafanum þínum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata
La Mata er lítið þorp sem heyrir undir Torrevieja. La Mata býður upp á 2ja km langar strendur með fínum sandi og sjarma Miðjarðarhafsþorps ásamt miklu úrvali af þjónustu. Fullkomin blanda hefða og nútímaþæginda.
Fullkominn staður til að njóta hafsins án þrengsla stórborgarinnar. Nýbyggingarnar á svæðinu eru íbúðir og raðhús í fyrsta flokki, í minna en 300 m. fjarlægð frá ströndinni og á mjög samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboð okkar við ströndina í La
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum