Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Þessi eign er ekki í boði
REF 1993473
Nýr kjarni raðhúsa í Los Balcones, hverfi sem staðsett er milli Orihuela Costa og miðbæjar Torrevieja. Í göngufæri má finna matvöruverslanir, bari og veitingastaði og Háskólasjúkrahús Torrevieja er skammt undan. Strendur má nálgast á 10 mínútum með bíl.
Húsin eru á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Framhlið hússins hefur skemmtilegt samspil viðarpanela og hvíts litar og allar eignir eru búnar séreldhúsi uppá klassískan máta. Á jarðhæðinni, til viðbótar við eldhúsið, má finna stofu og borðstofu ásamt gestasalerni og þvottahúsi. Á efri hæð eru svefnherbergin 3 og baðherbergi en úr hjónaherbergi má ganga útá verönd og þaðan uppá þakverönd sem býður uppá fallegt útsýni yfir saltvötnin í Torrevieja og hafið. Bílastæði er ýmist á lóð eða á sameiginlegu bílastæði innan kjarnans en þetta fer eftir því hvert eignirnar snúa.
Á sameiginlegu svæði eru stór sundlaug og gar
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Los Balcones er ein elsta íbúðabyggð Torrevieja og þjónustan þar er óviðjafnanleg, með fjölda ólíkra verslana, ásamt tómstundum og sjúkrahúsi.
Um er að ræða þéttbýliskjarna inn til landsins, um fjóra km frá ströndu, og samanstendur fasteignaframboðið af íbúðum og raðhúsum en þó sérstaklega einbýlum með stórum görðum. Hér má sjá fasteignaframboðið í Los Balcones:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum