Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Bigastro
Þessi eign er ekki í boði
REF 2133352
Nýr íbúðakjarni í bænum Bigastro, inní landi við suður Costa Blanca. Öll dagleg þjónusta er í næsta nágrenni, eins og matvöruverslanir, veitingahús, apótek og fleira. Aðeins 10 mínútna akstur er til borgarinnar Orihuela. Strendur Guardamar, Torrevieja og Orihuela Costa eru í aðeins 25 mínútna fjarlægð með bíl.
Byggingin er á fjórum hæðum, þar sem verslanahúsnæði er á jarðhæð. Íbúðir eru með 3-4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og lítilli verönd. Rúmgóð, opin stofa, borðstofa og eldhús, hannað svo að plássið nýtist sem best. Veröndin er ýmist útfrá stofu eða svefnherbergi, það fer eftir þeirri íbúð sem valin er.
Allar eignir eru afhentar með húsgögnum og tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun. Hver íbúð á eigin þakverönd á sameiginlegu þaki og bílastæði í kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Bigastro
Bigastro er bær á Vega Baja svæðinu, í suðurhluta héraðsins Alicante. Bærinn er mjög nálægt borginni Orihuela, höfuðborg svæðisins, sem hefur fjölbreytta þjónustu og ríka menningarlega og sögulega arfleifð.
Bigastro býður íbúum sínum rólegt og náttúrulegt umhverfi, með hefðbundnu andrúmslofti Miðjarðarhafsþorps, með vinsælum hátíðum, góðum mat en ýmsar fasteignir eru í boði í bænum, þó aðallega einbýlishús. Strendur Guardamar og Torrevieja eru í innan við 30 mínútna akstursfjarlægð.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum