Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Daya Nueva
Þessi eign er ekki í boði
REF 2131437
Nýr kjarni raðhúsa í spænska þorpinu Daya Nueva, inni í landi við suður Costa Blanca. Öll nauðsynleg þjónusta er í grenndinni og fallegar strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð með bíl. Tilvalin staðsetning til að upplifa hefðbundinn spænskan lífsstíl, umkringd appelsínu- og sítrónuökrum og tiltölulega nálægt Miðjarðarhafinu.
Húsin eru nútímaleg, byggð á einni hæð, með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þeim fylgir þakverönd á tveimur pöllum. Opin og björt stofa, borðstofa og eldhús og stórar glerhurðar sem opnast útá veröndina og sundlaugarsvæðið. Útfrá eldhúsi, bakvið húsið, er aðgangur að þakverönd sem skiptist í tvo palla.
Hverri eign fylgir sundlaug og bílastæði á lóð og eignirnar eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Daya Nueva
Daya Vieja og Daya Nueva eru tveir litlir nágrannabæir staðsettir í hjarta Vega Baja svæðisins. Svæðið einkennist af landbúnaði, sérstaklega ræktun á þistilhjörtum og kartöflum.
Undanfarin ár hafa bæirnir tekið miklum breytingum þökk sé byggingu á fasteignum sem ætlaðar eru ferðamönnum en framboðið einkennist af einbýlishúsum á mjög góðu verði þar sem rólegt umhverfi, umkringt náttúru einkennir næsta nágrenni. Aðeins 10 km eru að ströndum Guardamar og bæirnir eru einnig mjög nálægt helstu ferðamannastöðum í nágrenninu, svo sem Santa Pola, Torrevieja eða Orihuela Costa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum