Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Daya Vieja
Þessi eign er ekki í boði
REF 3345235
Nýr kjarni raðhúsa í Daya Vieja, inni í landi við suður Costa Blanca en í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar. Í næsta nágrenni má finna daglegar nauðsynjar. Aðliggjandi bæir; Almoradí, Rojales og Guardamar bjóða upp á fjölbreyttari þjónustu, verslanir, bari og veitingastaði, auk tveggja golfvalla.
Raðhúsin eru á einni hæð með þakverönd og velja má um tvenns konar eignir; L-laga hús með þakverönd með pergólu, eða ferkantað hús með geymslu út frá eldhúsi. Báðar gerðir húsa hafa opna stofu, borðstofu og eldhús og alrými opnast út á rúmgóða verönd með einkasundlaug. Þakveröndin er aðgengileg innan úr húsunum og býður upp á frábært útsýni yfir nærliggjandi svæði.
Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja eldhústæki, fataskápar, ljósapakki, sundlaug og útisturta, ásamt bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Daya Vieja
Daya Vieja og Daya Nueva eru tveir litlir nágrannabæir staðsettir í hjarta Vega Baja svæðisins. Svæðið einkennist af landbúnaði, sérstaklega ræktun á þistilhjörtum og kartöflum.
Undanfarin ár hafa bæirnir tekið miklum breytingum þökk sé byggingu á fasteignum sem ætlaðar eru ferðamönnum en framboðið einkennist af einbýlishúsum á mjög góðu verði þar sem rólegt umhverfi, umkringt náttúru einkennir næsta nágrenni. Aðeins 10 km eru að ströndum Guardamar og bæirnir eru einnig mjög nálægt helstu ferðamannastöðum í nágrenninu, svo sem Santa Pola, Torrevieja eða Orihuela Costa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum