Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Águilas
Þessi eign er ekki í boði
REF 2576631
Síðustu íbúðirnar sem í boði eru í þessum frábæra kjarna við ströndina í Águilas. Íbúðirnar eru staðsettar á fallegu svæði og í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá allri þeirri þjónustu sem bærinn Águilas býður uppá en þar má meðal annars telja verslunarmiðstöð, kvikmyndahús, veitingastaði, banka og skrifstofur sveitarfélagsins. Í stuttu máli, allt sem á þarf að halda er innan seilingar. Klukkustundar akstur er að nýja alþjóðaflugvellinum í Murcia og svæðið er vel tengt öðrum borgum og bæjum, um AP-7 hraðbrautina.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og búnar 1 eða 2 svefnherbergjum og 2 eða 3 baðherbergjum og stórum veröndum. Flestar búa þær að útsýni yfir hafið. Allar íbúðirnar eru með fullbúnu, sjálfstæðu eldhúsi og hjónaherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi. Stofa er rúmgóð og hefur aðgang að rúmgóðri verönd með útsýni yfir sameiginlega svæðið og sjóinn.
Íbúðirnar eru vel byggðar, marmari er á gólfum, loftkæling og hitun fylgir, rafmagns gluggahlerar og sólhlíf úr timbri ásamt nýtískulegum arni í stofu í einhverjum eignanna. Á sameiginlegu svæði eru nokkrar sundlaugar, svæði til afslöppunar og stórkostlegt útsýni er yfir sjó frá nánast öllum stöðum í kjarnanum.
Tilvalið tækifæri til fjárfestingar sökum frábærrar staðsetningar og einstaklega hagstæðs verðs.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Águilas
Aguilas er staðsett syðst við Murcia ströndina sem liggur að Andalúsíu og er fræg fyrir strendur, veiðar og ríka menningararfleifð. Aguilas býr að 28 km langri strandlengju og þar má telja 36 afar fallegar strendur og víkur, margar þeirra prýddar Bláa Fánanum sem er viðurkenndur gæðastaðall. Njóta má þægilegra þéttbýlisstranda sem umkringdar eru þjónustu, auk nokkurra fullkomlegra óspilltra paradísa við Miðjarðarhafið, svo sem Cabo Cope og Puntas de Calnegre, þar sem horfa má á hrífandi sólarupprásir.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum