Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Mazarrón
Þessi eign er ekki í boði
REF 1567781
Nýr íbúðakjarni við ströndina í Puerto de Mazarrón. Í göngufæri eru verslanir og aðstaða til ýmissa tómstunda. Höfnin í Mazarrón er í 2ja km fjarlægð og borgina Cartagena finnurðu í 15 km fjarlægð.
Tveggja svefnherbergja íbúðir, ýmist á jarðhæð með garði eða efstu hæð með þakverönd og fallegu útsýni yfir hafið. Húsin eru byggð með nýstárlegri hönnun og stórum gluggum. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug og garðar.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Mazarrón
Mazarrón er einn af aðal ferðamannastöðunum við strönd Murcia enda búin 35 km strandlengju þar sem finna má 15 strendur við byggð og 16 náttúrulegar strendur með földum klettum.
Þrátt fyrir það aðdráttarafl sem Mazarrón hefur á ferðamanninn, heldur bærinn hefðbundnum sjarma Miðjarðarhafsbæjar, þökk sé eftirliti sem haft er með þéttbýlismyndun á svæðinu. Auk þéttbýliskjarna Mazarrón, er nauðsynlegt að tala um höfnina í Mazarrón en hún er staðsett í gríðarfallegum flóa með víðum ströndum og heillandi klettum. Hrein paradís fyrir þá sem unna köfunaríþróttinni, þökk sé tæru vatninu og fegurðinni sem þar er falin en þar má finna tvö sokkin skip sem talin eru elstu skiprek Miðjarðarhafsins.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum