Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 3075793
Eignirnar eru staðsettar við golfvöllinn Hacienda del Álamo, við Costa Cálida, nálægt ströndum Mar Menor, Los Alcázares og Mazarón. Kjarninn er byggður við 18 holu golfvöll, með klúbbhúsi og þjónustukjarna, þar sem boðið er upp á verslanir, bari og veitingastaði, sem og 4* hótel með heilsulind og líkamsræktaraðstöðu. Helstu borgir í nágrenninu, Murcia og Cartagena, eru í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð, og þar með aukið úrval þjónustu og afþreyingar.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar, með 2 eða 3 svefnherbergjum og lítilli busllaug á stórri verönd. Eignirnar eru með fullbúnu eldhúsi, loftkælingu/hitun og bílastæði. Sameiginlegt svæði er meðal annars stór sundlaug, leiksvæði fyrir börn, paddle og tennisvellir og stór garður með fallegu útsýni yfir golfvöllinn.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum