Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
REF 4229960
Nútímaleg einbýlishús við golfvöll sem staðsettur er fyrir neðan þjóðgarðinn Sierra de Carrascoy. Á svæðinu má njóta hinna fjölmörgu göngu- og fjallahjólaslóða í náttúrinni, eða spila golf og Murcia borg er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Mar Menor og strandirnar eru í 15 mínútna akstursfjarlægð. Kjörið tækifæri til fjárfestingar, með allar daglegar nauðsynjar, strendur og borg, sem og alþjóðaflugvöllinn í Murcia í innan við 20 mínútna radíus.
Í boði eru tveggja hæða einbýlishús, í fjórar mismunandi útfærslum, á lóðum frá 1.000m2. Velja má um hús með 3 eða 4 en-suite svefnherbergjum og gestasalerni, hús með 4 svefnherbergjum og þakverönd, eða lúxus 5 svefnherbergja hús með kjallara. Öll húsin eru með opinni stofu, eldhúsi og borðstofu, en úr alrýminu er gengið út á stóra verönd með útsýni yfir golfvöllinn. Lúxus húsið hefur tvöfalda lofthæð í stofu og kjallara þar sem finna má þvottahús, fjölnota herbergi og tvöfaldan bílskúr.
Öllum eignum fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, snjallheimiliskerfi, fullbúinn garður, myndavéladyrasími, sjálfvirkt hlið, einkasundlaug með uppsetningu fyrir upphitun og bílastæði á lóð.
Á svæðinu er hefðbundið torg í Miðjarðarhafstíl með verslunum, veitingastöðum og kaffihúsum sem íbúar geta notið. Einnig er í boði líkamsræktaraðstaða með tennis- og paddlevöllum og heilsulind, auk 18 holu golfvallarins.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum