Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 4264707
Nýr einbýlishúsakjarni í íbúðahverfi í Fortuna, inni í landi í Murcia. Svæðið hefur allt að bjóða fyrir þá sem leita að sumarhúsi fjarri fjölförnum ferðamannasvæðum eða fyrir þá sem vilja friðsælt umhverfi til að njóta allt árið um kring. Bærinn býður uppá úrval þjónustu, svo sem matvöruverslanir, verslanir og veitingastaði, auk hinna þekktu náttúrubaða. Borgirnar Murcia og Orihuela eru í 30 mínútna fjarlægð með bíl, með mun fjölbreyttara úrvali þjónustu. Fallegar strendur Murcia, eins og San Pedro del Pinatar og Los Alcázares, eru í klukkutíma akstursfjarlægð.
Einbýli á einni hæð, auk kjallara, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á 365m2 lóð. Iðnaðarstíll er á hönnun hússins, með steyptum og flísalögðum yfirborðum, en mýkt með notkun náttúrulegra efna eins og viðar. L-laga hönnunin býður uppá flott rými fyrir veröndina og sundlaugarsvæðið útfrá rúmgóðri setustofu, borðstofu og eldhúsi. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi og fataherbergi. Rúmgóður 85m2 kjallari er í húsinu og má aðlaga að vild. Gegn aukakostnaði má bæta við þakverönd.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum