Costa Cálida, Costa Murcia Sur, San Juan de los Terreros
Þessi eign er ekki í boði
REF 3065606
Kjarni í fyrstu línu við strönd í Mar de Pulpí, í Almeríu. Eignirnar eru hannaðar í hefðbundnum stíl Andalúsíu, með hvítum veggjum og ávölum hornum. Öll nauðsynleg þjónusta er í boði í næsta nágrenni, allt frá matvöruverslunum, veitingastöðum og hótelum til góðrar aðstöðu til íþróttaiðkana, þar með talið vatnasport. Stór 70.000 m2 garður er aðgengilegur fyrir íbúa með leiksvæði fyrir börn og úti líkamsræktarbúnaði og á staðnum er glæsilegur strandbar og veitingastaður, opinn allt árið um kring. Góðar samgöngur eru frá svæðinu um vegi og með lestum, auk þriggja alþjóðlegra flugvalla.
Kjarninn skiptist í mismunandi svæði sem hvert hefur sitt sameiginlega rými, með sundlaugum og görðum, ásamt nuddpottum og finnsku gufubaði.
Hús á tveimur hæðum á eigin lóðum, með garði, einkasundlaug og þakverönd með útsýni yfir hafið. Velja má milli raðhúsa með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og einbýla, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Stofa, borðstofa og eldhús eru opin og þaðan er gengið út í garðinn og sundlaugarsvæðið. Á jarðhæð er einnig baðherbergi og svefnherbergi, með aðgangi að veröndinni. Önnur svefnherbergi eru á efri hæð. Þakverönd með markísu er aðgengileg frá herbergjum á efri hæð sem og af stigagangi.
Öll húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun og þeim fylgir bílastæði á lóð.
Möguleiki er að festa kaup á húsgagnapökkum og öðrum búnaði og eigendum stendur til boða þjónusta við útleigu og eftirlit, sem gerir eignirnar að góðu tækifæri til fjárfestingar.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, San Juan de los Terreros
Strandbærinn San Juan de los Terreros tilheyrir Pulpí í Almeríu, sem liggur að Murcia-héraði. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur og tvær eldfjallaeyjur útaf ströndinni eða Isla de Terreros-Isla Negra Natural.
Á undanförnum árum hefur ferðamennska á svæðinu aukist, þökk sé ströndunum og uppbyggingu þjónustu í kring. Tilvalin staðsetning fyrir íþróttaáhugamenn, sérstaklega þá sem unna vatnaíþróttum. Milt Miðjarðarhafsloftslagið býður uppá að hægt sé að stunda þær allan ársins hring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum