Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3069113
Íbúðakjarni í hefðbundnum spænskum stíl í Los Alcázares, aðeins 130m frá Mar Menor við Costa Cálida. Í göngufæri frá verslanakjarna og í 5 mínútna akstursfjarlægð frá miðbænum, þar sem finna má meira úrval þjónustu. Staðsetningin gerir eignirnar að kjörnu tækifæri til fjárfestingar.
Ólíkar íbúðir eru í boði; með 1, 2 og 3 svefnherbergjum og af mismunandi gerðum: jarðhæð með verönd/garði og beinum aðgangi að sundlaugarsvæðinu, efsta hæð með verönd með útsýni yfir sundlaugarsvæðið og tveggja hæða íbúðir með 3 svefnherbergjum. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu og borðstofu, með sér eldhúsi. Innifalin er loftkæling/hitun, fullbúið eldhús, uppsetning fyrir þjófavarnarkerfi, geymsla og bílastæði í bílageymslu.
Kjarninn er lokaður af og eftirlit er með honum allan sólarhringinn. Í sameiginlegu svæði er sundlaug, fallegir garðar með pálmatrjám og bílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum