Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
REF 3597230
Einbýlishús í Los Alcazares, við hvítar sandstrandir Mar Menor, þar sem alhliða þjónusta er í boði með fjölmörgum verslunum, börum og veitingahúsum.
Húsin eru byggð á 263 til 283 m2 lóðum með garði og einkasundlaug. Eignirnar eru á tveimur hæðum með stórri þakverönd og 15 m2 bílskúr. Öll húsin hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, eldhús með búri og opna stofu og borðstofu með aðgangi að garði.
Velja má milli húss með tvöfaldri lofthæð í stofu eða húss með stærri verönd á fyrstu hæð.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum