Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 217710
Einbýlishús í San Javier, við strendur Mar Menor en svæðið er þekkt sem Santiago de la Ribera og býður uppá alla nauðsynlega þjónustu.
Húsin eru á tveimur hæðum og byggð á 300 og 471 m2 lóðum. Á jarðhæð er hjónaherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og rúmgott alrými með nútíma eldhúsi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, annað þeirra ensuite. Möguleiki er á að bæta þar við fjórða svefnherberginu. Húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu, hiti er í gólfum á baðherbergjum og garður.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum