Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 4183483
Nýr kjarni parhúsa í San Pedro del Pinatar, bæ við strendur Murcia og aðeins 900m frá ströndum Mar Menor. Mikið úrval af þjónustu er í boði allt árið, á svæðum San Pedro del Pinatar og strandlengju Lo Pagán, auk smábátahafnar með snekkjuklúbbi og frábærs úrvals veitingastaða. Með greiðum aðgangi að hraðbrautinni er svæðið aðeins 30 mínútur frá Murcia flugvellinum og 50 mínútur frá Alicante flugvellinum.
Kjarninn samanstendur af parhúsum á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum. Aðalhæðin er með opinni hönnun sem sameinar eldhús, borðstofu og setustofu í rúmgóðu rými sem tengist verönd og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús má finna á þessari hæð líka. 2 svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi og aðgangi að verönd, eru á efri hæð.
Öllum eignum fylgja eldhústæki, loftkæling, inni og úti LED lýsing, einkasundlaug og malbikað bílastæði á lóð.Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum