Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona
REF 4880310
Nýr íbúðakjarni í Estepona með stórkostlegu sjávarútsýni. Frábær staðsetning, umkringt náttúru og einungis í 4 mínútna akstursfjarlægð frá ströndinni og allri þjónustu. Söguslóðir eru í um 10 mínútna fjarlægð en svæðið er ríkt af menningu og afþreyingu. Selwo dýragarðurinn er í um 10-15 mínútna fjarlægð, margir Michelin staðir, sem og fjöldi golfvalla. Estepona er með um 20 km strandlengju og er á milli Puerto Banús og Sotogrande, sem eru taldar mikilvægustu hafnir Costa del Sol. Kjarninn er vel tengur vegakerfinu, með góðum tengingum við AP-7 og A-7 hraðbrautirnar sem gerir það auðvelt að aka til helstu staða, s.s. til Puerto Banús á 15 mínútum, til Marbella á 25 mínútum og til Algeciras á 40 mínútum. Flugvöllurinn í Malaga og á Gíbraltar eru í um klukkustundarfjarlægð.
Kjarninn býður upp á íbúðir sem eru með 2 eða 3 svefnherbergjum, fáanlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir með verönd og sumar þeirra eru einnig með garði; miðhæðir með verönd, á tveimur hæðum með 2 svefnherbergjum, og þakíbúðir með þakverönd. Byggðar í halla sem gerir útsýnið frá íbúðunum stórkostlegt. Stofan er með opnu skipulagi, eldhúsið, borðstofan og stofan í opnu rými sem opnast út á verönd. Hjónaherbergið er með baðherbergi inn af og aðgengi út á verönd. Íbúðirnar eru hannaðar með það í huga að sem mest náttúruleg birta skili sér inn sem gerir íbúðirnar bjartar og skemmtilegar, og gott að njóta loftlagsins á Costa del Sol. Möguleiki er að breyta íbúðunum ef komið er nægilega snemma að kaupunum.
Íbúðirnar eru byggðar úr úrvals byggingarefnum og þeim fylgir fullbúið eldhús, loftkæling, gólfhiti í allri íbúðinni, þvottaherbergi, geymsla og, fer eftir íbúðum, tvö bílastæði. Kjarninn er alveg lokaður með myndavélaeftirliti. Sameiginlegu svæðin eru frábær með stórri sundlaug, tómstundarými, stóra garða, líkamsræktarsal, stæði fyrir reiðhjól og góða stíga. Allir íbúar hafa aðgang að klúbbi, auk fjölda sundlauga, ein þeirra er hituð, gufuböð, og margt fleira.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona
Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.
Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum