Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
REF 4321437
Íbúðasamstæða á Higuerón svæðinu, mjög nálægt Fuengirola, og aðeins 1,5 km frá ströndinni. Á toppi hæðar, nýtur samstæðan fallegs útsýnis yfir Miðjarðarhafið og náttúruna í kring. Fuengirola er í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð og býður upp á alla nauðsynlega daglega þjónustu, sem og mikið úrval af menningar- og tómstundastarfi. Samstæðan liggur á milli tveggja af mest áberandi borgum héraðsins, Málaga og Marbella, sem eru í 15-20 mínútna fjarlægð.
Íbúðir með 3 svefnherbergjum og stórum útisvæðum, þar sem hlýtt loftslag Costa del Sol nýtur sín. Velja má milli íbúða á jarðhæð með garði eða íbúða á fyrstu hæð með stórri verönd. Allar íbúðirnar eru með stóru hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi. Innifalið við afhendingu eru fullbúin eldhús, loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum og verönd með sumareldhúsi og útisturtu. Gegn aukakostnaði má setja einkasundlaug í garð íbúða á jarðhæð.
Kjarninn er lokaður og býður upp á 24 klst. öryggi með lykilorðastýrðum aðgangi og myndbandseftirliti. Á sameiginlegu svæði er sundlaug með stórkostlegu víðáttumiklu sjávarútsýni, líkamsræktarstöð með heilsulindarsvæði, upphituð sundlaug og stór garðsvæði með staðbundnum plöntum í stíl við náttúruna í kring.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.
Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.
Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum