Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
REF 5003975
Kjarni einstakra einbýlishúsa með sjávarútsýni í Fuengirola. Frábær staðsetning á Costa del Sol, á milli Marbella og Malaga, og í um 10 mínútna fjarlægð frá miðpunkti Fuengirola, höfninni og ströndinni. Kjarninn er í nálægð við alls kyns þjónustu, s.s. matvöruverslanir, íþróttavelli, heilsugæslu, frábæra skóla fyrir allan aldur og stórkostlegt úrval veitingastaða, verslana og afþreyingar. Þá eru fjölmargir golfvellir í nágreninu, eins og La Cala Golf og Chaparral Golf Club. AP7 hraðbrautin og A7 tengja svæðið vel og er um 20 mínútur til Cala de Mijas, og til Puerto Banús og Marbella eru um 30 mínútur. Alþjóðaflugvöllurinn í Malaga er í um 20 mínútna fjarlægð.
Einstök og nútímleg hús á 2 hæðum, byggð á lóðum sem eru um 803m2 og 980 m2, með 4 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, og með eða án kjallara. Vel hönnuð hús sem standa í suður og njóta mikillar náttúrulegrar birtu, og með gólfsíðum gluggum þar sem útsýni til sjávar og til fjalla nýtur sín. Á jarðhæðinni er stofan, eldhúsið og borðstofan í opnu rými með stórum gluggum á báðum hliðum sem opnast út á útisvæðið. Á hæðinni er einnig herbergi og gestasalerni. Útisvæðið er með allt sem er nauðsynlegt til að njóta góða loftlagsins á Costa del Sol með stórri verönd , hálfyfirbyggðri, sundlaug og stórum fallegum garði. Hjónaherbergið er með baðherbergi og fataherbergi og er staðsett á annarri hæð hússins, auk tveggja annarra herbergja sem eru með sameiginlegt baðherbergi. Húsin sem eru með kjallara eru með gestasalerni, þvottaherbergi, bílskúr fyrir 2 bíla, og stórt tómstundarými sem er kjörið fyrir líkamsræktaraðstöðu, vínkjallara, bíósal eða hvað sem er.
Húsin eru byggð úr úrvals byggingarefnum með loftkælingu, gólfhita, tengi fyrir lyftu, sundlaug, garð með raf- og vatnslögnum. Húsin sem eru án kjallara eru með tvö bílastæði.
Aukalega er hægt að fá ýmsar breytingar, s.s. fullbúna lyftu, þaksvalir og hitapumpu fyrir sundlaugina.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.
Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.
Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum