Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella
REF 4018991
Lúxus íbúðakjarni, staðsettur við rætur Sierra de Marbella fjallanna. Frábær staðsetning, aðeins 5 mínútur frá nokkrum af helstu ferðamannastöðum Costa del Sol, eins og Los Monteros ströndinni, Río Real golfvellinum, hinni frægu La Cañada verslunarmiðstöð og sögulegum miðbæ Marbella. Svæðið er þannig tilvalið og býður uppá frábært úrval af menningar- og tómstundastarfi og veitingastöðum. Öll nauðsynleg þjónusta í nágrenninu, fallegt útsýni, mildur hiti og sólríkir dagar undir fjallgarði Sierra de Marbella.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella
Marbella er í sjálfu sér einn helsti áfangastaðurinn við Costa del Sol. Frábært loftslag, strendur, náttúra og glæsilegar íþróttamiðstöðvar, eru aðeins lítið brot af því sem bærinn býður uppá.
Með yfir 147.000 íbúa, er Marbella önnur stærsta borg Málaga héraðs. Auk þess er bærinn ein mikilvægasta ferðamannaborg Costa del Sol og Spánar í heild sinni ef því er að skipta.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum