Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella
Þessi eign er ekki í boði
REF 4607847
Einstakar íbúðir og þakíbúðir í hjarta Marbella og aðeins 200m frá göngusvæðinu. Óviðjafnanleg staðsetning, í göngufæri við alls kyns þjónustu, ströndina, smábátahöfnina, sem og gamla bæinn með bestu veitingastöðunum, lúxusverslunum og Plaza de Los Naranjos með litríkum kaffihúsum. Marbella er einn eftirsóttasti staðurinn við Costa del Sol og fullkominn staður til að njóta Miðjarðarhafslífsstílsins. Svæðið er einnig tilvalið fyrir golfáhugamenn, með marga af bestu völlunum á öllum Spáni. AP-7 og A-7 hraðbrautirnar gera það auðvelt að komast til annarra ferðamannasvæða, eins og La Cala de Mijas og heillandi bæjarins Mijas á 30 mínútum, Fuengirola á 35 mínútum og Estepona á 40 mínútum. Málaga alþjóðaflugvöllurinn er í 45 mínútna fjarlægð.
Nútímalegar íbúðir og tveggja hæða þakíbúðir, með 2ja og 3 svefnherbergjum, í 5 hæða byggingu með einstakri hönnun. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu, eldhúsi og borðstofu, í björtu rými með stórum gluggum út á verönd. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi. Í tveggja hæða þakíbúðunum eru öll svefnherbergi á efstu hæð með útgengi út á stóra verönd. Það fer eftir byggingarstigi hvort sérsníða má frágang.
Þessar íbúðir eru byggðar með hágæða efnum og hafa fullbúið hönnunareldhús með miðlægri eyju, loftkælingu, gólfhita, snjallheimakerfi, geymslu og bílastæði í kjallara (þakíbúðir eru með 2 bílastæðum). Í samstæðunni verður líkamsræktarstöð.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella
Marbella er í sjálfu sér einn helsti áfangastaðurinn við Costa del Sol. Frábært loftslag, strendur, náttúra og glæsilegar íþróttamiðstöðvar, eru aðeins lítið brot af því sem bærinn býður uppá.
Með yfir 147.000 íbúa, er Marbella önnur stærsta borg Málaga héraðs. Auk þess er bærinn ein mikilvægasta ferðamannaborg Costa del Sol og Spánar í heild sinni ef því er að skipta.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum