Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
Þessi eign er ekki í boði
REF 3918631
Lúxus kjarni nútímalegra íbúða staðsettur á upphækkuðu svæði í Mijas Costa, með stórkostlegu sjávarútsýni sem snýr í suðvestur! Í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð frá Fuengirola og ströndum Mijas. Rólegt og aðgengilegt svæði, sem tengist allri ströndinni vel. Marbella er í aðeins 20 mínútna fjarlægð og lestin tengir einnig Fuengirola við Málaga. Verslanamiðstöðvar, hótel, golfvellir og strendur eru í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð. Mijas Costa býður upp á margs konar matarupplifun meðfram ströndinni, en inní landi í Mijas er svæði sem varðveitir sjarma hvítu þorpanna í Andalúsíu. Málaga flugvöllur er í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn samanstendur af íbúðum af mismunandi gerðum; íbúðir á jarðhæð með 2 eða 3 svefnherbergjum, stórum veröndum og garði, íbúðir á miðhæð með 2 svefnherbergjum eða þakíbúð með 2 svefnherbergjum og þakverönd. Allar íbúðirnar eru með rúmgóðri stofu með hálfopnu og fullbúnu eldhúsi. Íbúðunum fylgir einnig gólfhiti á baðherbergjum, bílastæði og geymsla. Kjarninn hefur sameiginlega sundlaug.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa
La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina.
Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum